Frelsishreifing Íslands stofnsett

25. April 2010 · Skrifað í Óflokkað · Athugasemd 

Samkvæmt yfirlýsingu sem að LG hefur undir höndum þá var bandalagið Frelsishreifing Íslands sett á stofn þann 20.04.10. Markmið hreifingarinnar er “að ná fram stjórnlagaþingi með öllum tiltækum ráðum þannig að þjóðin geti skapað sér framtíðarsýn á eigin forsendum.”

Vekur það athygli LG hve yfirlýsingin er harðorð og afgerandi. Í yfirlýsingunni er tekið fram að hópurinn sem stendur að hreifingunni sé fólk úr öllum stéttum þjóðfélagsins sem sé löngu búið að fá nóg af valhroka og lygum.

  • Share/Save/Bookmark

Ólafur Ragnar Grímsson segi af sér

6. January 2010 · Skrifað í mótmæli · 2 Athugasemdir 

Við kærum okkur ekki um forseta sem ákveður nýja stjórnskipun fyrir Ísland einn síns liðs og gerir ríkið marklaust í alþjóðlegum samskiptum.

Skráðu þig í grúppuna á Facebook.

  • Share/Save/Bookmark

Lánabók Kaupþings fyrir hrun

1. August 2009 · Skrifað í Bankamál, Fréttir, Gögn, Spilling · Athugasemd 

kaupthing-forsida

Úrdrátt má m.a. sjá hérna.

Upplýsingar fengnar af vef WikiLeaks.org

  • Share/Save/Bookmark

Mótmæli í dag kl. 15 við Alþingi

9. June 2009 · Skrifað í mótmæli · Athugasemd 

Friðsamleg mótmæli gegn Icesave-samningi ríkisstjórnarinnar halda áfram á morgun þriðjudaginn 9. júní kl. 15:00 og síðan áfram á sama tíma út vikuna. Mótmælum þessum nauðungarsamningi og hvetjum þingmenn til þess að hafna honum. Það má ekki gerast að samningurinn verði samþykktur!

FJÖLMENNUM !!!

  • Share/Save/Bookmark

Leynigögn: Greiðslurnar sem útibússtjórinn kannast ekki við

5. June 2009 · Skrifað í Bankamál, Fréttir, Spilling · 3 Athugasemdir 

 
DV.is: Leynigögn 

 

DV.is: Leynigögn

Guðmundur Ingi Hauksson, fyrrverandi útibússtjóri Landsbankans í Austurstræti, segist í samtali við DV í dag ekkert kannast við greiðslurnar tvær frá Knerri inn á reikninga Sigurðar Björns Sigurðarssonar og þáverandi eiginkonu útibússtjórans, Sigríðar Sveinsdóttur. Guðmundi var vikið úr starfi sínu á miðvikudaginn vegna aðkomu sinnar að málinu. Millifærslurnar líta út fyrir að vera greiðslur til Guðmundar í staðinn fyrir lánveitingar til eignarhaldsfélagsins Knerris frá Landsbankanum.

„Vegna bankaleyndar get ég ekkert tjáð mig um þetta félag né önnur sem eiga í viðskiptum við bankann,“ segir útibússtjórinn fyrrverandi í viðtali við blaðið í dag. Viðskiptin áttu sér stað í apríl og október á árinu 2005. Knerrir fékk lán upp á 20 milljónir króna frá Landsbankanum til að kaupa hlutabréf í bankanum. Bréfin hækkuðu í verði frá því í apríl og fram í október þegar þau voru seld. Sjö milljónir af tæplega 8 milljóna hagnaði af hlutabréfakaupunum voru lagðar inn á reikninga Sigurðar og Sigríðar nokkrum dögum eftir sölu hlutabréfanna.

Lesa meira á DV.is

  • Share/Save/Bookmark

Hagurinn vænkast…

5. June 2009 · Skrifað í Fréttir, Spilling · Comments Off 

Voru það ekki stjórnmálamenn, sem sögðu að eftir að þeir hættu á Þingi, hefðu þeir svo erfitt uppdráttar?

Hér sýnir það sig, svart á hvítu, að gifting stjórnmála og fyrirtækja (Corporatism Fascism) er greinilega inni á Alþingi - og hefur verið um langt skeið.

 

Framsóknarhöllin

Framsóknarhöllin

Vefsíðan hvítbok.vg birti í dag myndband af húsi Kristins Björnssonar og Sólveigar Pétursdóttur eftir að DV birti umfjöllun sína um íslenska auðmenn á Flórída. Myndbandið er sölumyndband frá fasteignasölu. Húsið stendur við Lake Nona vatnið á Orlando.

Eins og DV hefur greint frá seldi Kristinn húsið frá félaginu sínu Mercatura ehf. til sjálfs síns fyrir stuttu. Kaupverðið var einungis fjórðungur af markaðsvirði hússins. Gjörningur Kristins vakti litla hrifningu nágranna hans en með honum lækkaði hann fasteignamat nágrannanna um tíu prósent.

DV: Hús Kristins og Sólvegar - Myndband

  • Share/Save/Bookmark

Almenn mótmæli við Alþingi

5. June 2009 · Skrifað í Aðsent efni · 2 Athugasemdir 

Heiftarleg mótmæli eru innan sem og utan veggja Alþingis vegna Icesave

Þjóðin á að greiða 35 milljarða á ári - bara í vexti.

Á 7 árum borgum vid 245 milljarða í vexti og þá á eftir að greiða höfuðstólinn sem er?

Sigurlaug Ragnarsdottir

Allt Alþingi logar því að almenningur á ekki að fá að vita þetta - RÚv ætlar að þagga þetta niður, enda liggur umræðan niðri í sjónvarpinu.

Menn biðja almenning um að koma sér til hjálpar núna! Fullt af fólkier á leiðinni!

  • Share/Save/Bookmark

Eyjan: Íslensk ættartengsl og klíkuskapur ollu miklum skaða í aðdraganda kreppunnar

5. June 2009 · Skrifað í Fréttir, Spilling · Athugasemd 

Eyjan: Robert Wade

Eyjan: Robert Wade

Líklega hefði íslenska efnahagshrunið ekki orðið jafn alvarlegt ef embættismenn væru ráðnir á faglegum forsendum en ekki samkvæmt ættartengslum og vinaböndum.

Þetta sagði Robert Wade, hagfræðiprófessor, sem hefur rannsakað íslenska efnahagslífið í mörg undanfarin ár í samtali við fréttastofu RÚV.

Hann leggur til að Íslendingar komi sér upp stofnun sem leggi mat á umsækjendur um opinber embætti og ráði í þau eftir hæfni. Hann telur að ættartengsl og klíkuskapur hafi ráðið of miklu um embættisveitingar hér og þjóðin hafi goldið þess í aðdraganda kreppunnar.

Lesa meira…

  • Share/Save/Bookmark

Blásið til byltingar?

3. June 2009 · Skrifað í Aðsent efni · Athugasemd 

Eftir Ólaf Skorrdal

When the people fear their government, there is tyranny; when the government fears the people, there is liberty.

Thomas Jefferson

sjaldarmerkiÉg hef sagt það áður - og segi það enn: Stjórnmálamenn (með fáum undantekningum) eru atvinnulygarar á launum samfélagsins. Mér er orðið það ljóst, eftir síðustu kosningar, að núverandi stjórn ætlar að halda áfram þeirri lýðræðisnauðgun sem átt hefur sér stað síðustu áratugina, bara til að halda völdum, kjörum og embættum síns fólks. Það hefur ekkert breyst í stjórnarfari landsins - það á ekkert eftir að breytast, nema komi til blóðugrar byltingar almennings í þessu landi.

Þjóð mín stendur á bjargbrún; horfir ofan í hyldýpið og sér lítið annað en svartnættið framundan. Núverandi Ríkisstjórn virðist gersamlega ráðalaus og ekki hafa nokkuð vit á því sem þau eru að gera. Arðrán auðlindanna viðrist yfirvofandi, hvort sem okkur líkar betur eða verr; Ríkisstjórnin hefur aðeins eina stefnu: Að koma okkur inn í ESB, hvort sem við höfum myndað okkur upplýsta skoðun eða ekki; hvað sem það kostar.

Ég hef ekki myndað mér skoðun á því hvort við eigum að fara inn í ESB eða ekki; ég hef ekki fengið að heyra neitt nema kjaftæði og blaður, frá báðum hliðum. Ég mynda mér sjaldnast skoðanir eftir einhverjum áróðurspésum - en ég vona að hægt verði að fara í þessa umræðu án þeirrar móðursýki og upphrópanna, sem hingað til hafa tröllriðið allri umræðu í þessu landi, án þess að nokkur niðurstaða hafi fengist.

althingibrennurStjórnvöld eiga að óttast lýðræðismátt þess samfélags sem þau þjóna. Slíkt hefur ekki verið fyrir að fara á þessu landi í áratugi. Má segja að stjórnvöld á Íslandi hafi aldrei óttast lýðræðismátt samfélagsins, heldur frekar verið til að stjórna okkur og skipa okkur í sveitir, til þess eins að samstaða okkar næði aldrei þeim mætti sem þau þyrftu að óttast. Ef við náum ekki að standa saman núna, eftir það gríðarlega hrun sem átt sér hefur stað, hvenær er þá tíminn?

Það er kominn tími til að við, íslendingar - barnfæddir eða aðfluttir - standi saman og sýni núverandi stjórnvöldum að þau komist ekki upp með að svíkja öll þau loforð sem þau gefa okkur fyrir kosningar; þetta er okkar lýðræði - okkar land; okkar framtíð. Ef við krefjumst Stjórnlagaþings, til að breyta Stjórnarskrá okkar eða búa til nýja, þá kemur það Alþingi ekki neitt við; þetta er okkar Stjórnarskrá, fyrir okkar þegna - alþingismenn - að vinna eftir. Við erum ekki þeirra þegnar; við búum ekki við konungs- eða lénsveldi í þessu landi, eins og þessir “kjörnu” fulltrúar hafa greinilega haldið eflaust frá stofnun lýðveldisins. Lýðveldið er okkar - lýðræðið er okkar - og enginn kjörinn fulltrúi á Alþingi okkar, hvort sem hann er í stjórn eða stjórnarandstöðu, á að komast upp með að neita okkur um þá kröfu sem við förum fram á.

Alþingi

Alþingi

Annað hvort þarf að blása til raunverulegrar byltingar í okkar samfélag, sem umbreytir öllu kerfinu frá A til Ö, eða núverandi kjörnir fulltrúar fara að hlusta á kröfur okkar og þarfir. Ef það þarf að blása til byltingar, til þess að koma atvinnulygurum samfélagsins frá völdum, þá verður bara svo að vera. Slíkt hefur þurft að gera nokkrum sinnum í þróuðum lýðræðislöndum - og öðrum vanþróaðri - til þess eins að sýna “valdinu” hvaða það sækir sín völd. Ef okkar ráðherrar og stjórnmálamenn koma því ekki inn fyrir sína þunnu skel, verðum við sem þjóð, hreinlega að sýna þeim það og gefa ekkert eftir. En erum við nógu samstíga til þess, eða hentar þeim sundurþykkni okkar til þess að viðhalda núverandi mafíulýðræði?

 

  • Share/Save/Bookmark

Bjarni Benediktsson tók við fé í sjálfstæðisflokkinn á móti niðurfellingu skatta á lögaðila!

10. April 2009 · Skrifað í Fréttir, Sagnfræði, Spilling · 1 Athugasemd 

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra 1963 - 1970, faðir Björns Bjarnasonar fyrrverandi Dómsmálaráðherra og afabróðir Bjarni Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins tók við fé í sjóði sjálfstæðisflokksins gegn því að skattaskuld á viðkomandi lögaðila var felld niður. Lesa meira

  • Share/Save/Bookmark

Nýrri færslur »